-
Öflugt ungt fólk með sterkar raddir
,,Mér bárust spurningar nemenda um menntamál og komst að því að það væri fyrir tilstuðlan verkefnis sem fyrsta árs nemar væru að vinna í tengslum við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Í kjölfarið bauðst mér að heimsækja skólann og ræða við þau,‘‘ segir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, sem heimsótti nýlega nemendur á 1. ári í […]
-
Samráðsfundur um skólaverkefni
Settur hefur verið á laggirnar samráðsvettvangur að frumkvæði mennta-og barnamálaráðuneytisins um skólaverkefni Landverndar, UNICEF og Félags Sameinuðu þjóðanna. Verkefnin sem um ræðir hafa mikil samlegðaráhrif og því var ákveðið að leita leiða til að auðvelda skólum innleiðingu á viðkomandi verkefnum. Landvernd er með verkefnið Skólar á grænni grein, UNICEF er með Réttindaskólana og Félag Sameinuðu […]
-
Verzló og heimsmarkmiðin
Nemendur á 1. ári í Verzlunarskóla Íslands vinna nú að metnaðarfullu þróunarverkefni um heimsmarkmið SÞ um sjálfbæra þróun. Um er að ræða samþættingarverkefni í dönsku, ensku, hagfræði, íslensku og tölvunotkun. Í upphafi verkefnisins hélt Kristrún fyrirlestur um heimsmarkmiðin. Að því loknu fékk hún að fylgjast með vinnu nemenda. ,,Það var frábært að fá að fylgjast […]
-
Kynning á Lífskjaraskýrslu Þróunaráætlunar SÞ þann 27. október
Kynning á Lífskjaraskýrslu Þróunaráætlunar SÞ verður á Háskólatorgi í Háskóla Íslands þann 27. október milli 12:00-13:00. Félag SÞ á Íslandi ásamt Utanríkisráðuneytinu og Alþjóðamálastofnunar HÍ standa að málþingi í samtarfi við norðurlandaskrifstofu Þróunaráætlunar SÞ (UNDP Nordic Office). Helstu niðurstöður skýrslunnar verða kynntar og umræður um framtíð þróunarmála ásamt stöðu Íslands verður rædd í panel. […]
-
Ungt fólk og mannréttindi á Nordic Camp
Þann 24. september fóru fjórir nemendur ásamt kennara sínum úr Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ til Danmerkur á ráðstefnuna „Nordic Camp – Stand Up For Human Rights“ en markmið hennar var að auka þekkingu og áhuga á mannréttindum hjá yngri kynslóðinni. Á ráðstefnunni voru 14-18 ára nemendur frá Íslandi, Grænlandi, Færeyjum, Noregi, Finnlandi, Danmörku og Kanada. Þegar […]
-
Ávarp aðalframkvæmdastjóra SÞ í tilefni Dags Sameinuðu þjóðanna þann 24. október
Í dag, 24. október höldum við upp á Dag Sameinuðu þjóðanna en þá var Stofnsáttmáli SÞ staðfestur árið 1945. í tilefni dagsins gaf Aðalframkvæmdastjóri SÞ, António Guterres út ávarp sem við hjá Félagi SÞ höfum nú þýtt yfir á íslensku. SKILABOÐ FYRIR DAG SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA 24 október 2022 Sameinuðu þjóðirnar eru afurð vonar. Vonin […]
-
„Áhersla mín núna er menntun mín“
„Áhersla mín núna er menntun mín“ segir fórnarlamb nauðgunar neydd til barneignar á barnsaldri sem berst nú gegn fordómum til þess að ljúka menntun sinni. Í Moroni, höfuðborg Kómoreyja – „Ég fylgdi honum inni húsið. Ég vissi ekki að hann myndi nauðga mér.“ Þegar Mariama* var einungis 13 ára var henni nauðgað af nágranna sínum […]
-
Ljósmyndasýningin ‘Child mothers’ opnuð í Smáralind
Í dag opnaði ljósmyndasýningin ‘Barnungar mæður’ eða ‘Child mothers’ í Smáralind á alþjóðlegum degi stúlkubarnsins. Utanríkisráðherra Íslands, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir opnaði sýninguna formlega ásamt Pernille Fenger, skrifstofustjóra norrænu skrifstofu UNFPA, Mannfjöldasjóðs SÞ og Völu Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóra Félags SÞ. Ungmenni úr 9. og 10. bekk Salaskóla voru viðstödd opnunina og kynntu sér sögurnar. […]
-
WHO og ILO kalla eftir aðgerðum til að sporna við andlegum vandamálum á vinnustöðum
Á dögunum gaf WHO, Alþjóðaheilbrigðismálastofnun SÞ út nýjar leiðbeiningar varðandi meðhöndlun andlegra vandamála á vinnustað ásamt hagnýtum aðferðum til meðferðar starfsmanna og kollega sem mögulega glíma við geðræn vandamál. WHO hefur gefið þau tilmæli að best sé að tækla vandamálið við rótina með því að sporna við miklu vinnuálagi, neikvæðu atferli og öðrum þáttum sem […]
-
Guterres hvetur til framlengingar og víkkunar skilmála vopnahlésins í Jemen
Vopnahlé í Jemen hefur verið framlengt tvisvar síðan það var sett á 2. apríl síðastliðinn. Þetta er lengsta tímaskeið friðar í Jemen síðan átökin færðust í aukana 2015 en mannfall hefur fallið um 60 prósent síðan vopnahléið byrjaði samkvæmt Öryggisráði SÞ. Vopnahléið endaði á sunnudaginn 2. október og hefur ekki ennþá verið framlengt þegar […]