Heimsmarkmið 6 Hreint vatn og hreinlætisaðstaða Tryggja aðgengi allra að hreinu vatni og sjálfbæra nýtingu þess svo og hreinlætisaðstöðu

6.1       Eigi síðar en árið 2030 standi öllum til boða heilnæmt drykkjarvatn á viðráðanlegu verði hvar sem er í heiminum.

6.2       Eigi síðar en árið 2030 hafi allir jafnan aðgang að fullnægjandi hreinlætisaðstöðu og enginn þurfi að ganga örna sinna utan dyra. Í þessu tilliti verði sérstaklega hugað að þörfum kvenna og stúlkna og þeirra sem eru í viðkvæmri stöðu.

6.3       Eigi síðar en árið 2030 verði vatnsgæði aukin með því að draga úr mengun, útiloka óæskilega sorplosun og lágmarka losun hættulegra efna og efnablandna. Hlutfall óunnins skólps og frárennslisvatns verði minnkað um helming og endurvinnsla og örugg endurnýting aukin til muna um heim allan.

6.4       Eigi síðar en árið 2030 verði vatn nýtt mun betur á öllum sviðum. Sjálfbær vatnsnotkun verði tryggð í því skyni að koma í veg fyrir vatnsskort. Jafnframt verði dregið verulega úr fjölda þeirra sem þjást af vatnsskorti.

6.5       Eigi síðar en árið 2030 verði stjórnun vatnsauðlinda samþætt á öllum sviðum, meðal annars með samstarfi yfir landamæri eftir því sem við á.

6.6       Eigi síðar en árið 2020 verði unnið að úrræðum til að vernda og endurheimta vatnstengd vistkerfi, þ.m.t. fjalllendi, skóga, votlendi, ár, grunnvatnsból og vötn.

6.A      Eigi síðar en árið 2030 nái alþjóðleg samvinna og stuðningur að efla starfsemi og áætlanir þróunarlanda sem tengjast vatni og hreinlætisaðgerðum, þ.m.t. vatnsöflun, afsöltun, vatnsnýtingu, hreinsun skólps og frárennslisvatns, endurvinnslu og tækni til endurnýtingar.

6.B       Stutt verði við byggðarlög til að bæta vatnsstjórnun og hreinlæti.

Ítarefni um markmið 6

6: Hreint vatn og salernisaðstaða

Ljósmynd frá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) í Bubango, Tanzaníu.

Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna Antonio Guterres hefur látið þau ummæli falla að á áratug aðgerða tengdum vatni 2018-2028 eru tækifæri til að auk meðvitund, skilgreina vegvísi og koma vatni á dagskránna. Stefnt er að því að uppfylla öll heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun undir lok þriðja áratugar 21. aldar, eigi síðar en árið 2030.

Sjötta heimsmarkmið SÞ um hreint vatn og hreinlætisaðstöðu skipar, líkt og hin sautján markmiðin, vegamikinn sess í vegferðinni að sjálfbærri þróun í heiminum.

Í öllum heiminum hefur þriðjungur mannkyns eða sem nemur um það bil 2,2 milljarð manna lélegt og ófullnægjandi aðgengi að fersku neysluvatni. Talið er að í heiminum öllum séu um 785 milljónir manna sem eru beinlínis án aðgangs að neysluvatni. Talið er að tveir af hverjum fimm einstaklingum hafi ekki aðstöðu til handþvottar.

Talið er að 4,2 milljarðar manna hafa ekki aðgang að viðunandi hreinlætisaðstöðu. Um 673 milljónir manna hafa enga aðstöðu til að sinna salernisþörfum og þurfa því að gegna þeim á víðavangi. Stórbættur aðgangur að neysluvatni getur því bjargað milljónum mannslífa.

Nokkur undirmarkmið eru undir sjötta heimsmarkmiði SÞ um hreint vatn og hreinlætisaðstöðu. Undirmarkmið 6.2 fjallar til dæmis um að tryggja gott aðgengi að salernum um alla heim. Sérstaklega er nauðsynlegt til að bæta stöðu kvenna og stúlkna.

Sömuleiðis er brýnt að tryggja aðgengi að neysluhæfu vatni vegna mikillar fátæktar víða um heim. Fátækt í heiminum hlýtur ein og sér að skerða og hefta möguleika fólks til nauðsynlegs aðgangs að fersku neysluvatni 

Sjálfbær þróun samkvæmt undirmarkmið 6.3 fjallar meðal annars um bætt vatnsgæði og hreinsun á skólpi í fráveitum. Í fátækari löndum má finna opin og/óunnin skólp en að búa við aðstæður af því tagi er hvorki bjóðandi mönnum né dýrum.

Heimsmarkmið SÞ um sjálfbæra þróun fyrir árið 2030 gefa okkur nokkur ár til að betrumbæta þetta afleita ásigkomulag. Sjálfbær þróun, vinnsla skólps og fráveitur sem liggja út í sjó eins og finna má hér á landi og víðar geta leikið lykilhlutverk. Þannig væri hægt að koma á stórfelldum úrbótum á þessu viðkvæma og lífsnauðsynlega málefnasviði sjálfbærrar þróunar.

Ísland á alþjóðlegum vettvangi 

Börn fylla vatnstanka við samfélagsvatnspóst á hinni þurrkviðrasömu Tihama hásléttu nálægt Hodeidah í hinu stríðshrjáða Jemen.

Í ræðu um heimsmarkmið SÞ númer sex benti þáverandi utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, á að sá hópur sem verst verður úti vegna skorts á hreinu vatni séu konur og stúlkur á þurrkasvæðum jarðarinnar. Þær eyði samtals 200 milljón klukkustundum á degi hverjum í að sækja sér og fjölskyldum sínum vatn. Þetta sé tapaður tími sem mætti nýta í margt annað, svo sem menntun, tekjuöflun og samveru með ástvinum.

Vegna þessa veigamikla hlutverks kvenna og stúlkna við vatnsöflun og hin ýmsu landbúnaðarstörf sé brýnt að konur séu með í ráðum ef takast á að ná heimsmarkmiði SÞ númer sex um hreint vatn og hreinlætisaðstöðu.

Í samstarfi við Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) er unnið að því að bæta vatns- og salernisaðstöðu í einu fátækasta og fjölmennasta fylki Afríkuríkisins Mósambík. Verkefnið snýr að því að bæta aðgang að neysluvatni og líka tryggja þar viðeigandi hreinlætisaðstöðu.

Þannig má með ábyrgum og fullnægjandi hætti koma upp hreinlætisaðstöðu og stuðla þannig að bættum hreinlætisvenjum íbúa. Um er að ræða úrbætur sem varða tugi þúsund Mósambíkbúa. Samhliða þessum aðgerðum mun vatns- og hreinlætisaðstaða vera gerð aðgengileg fyrir um það bil sex þúsund nemendur í fimmtán skólum þar í landi.

Í Afríkuríkinu Úganda er hafin fræðsla í skólum á mikilvægi vatns- og hreinlætisaðstöðu. Einnig er fjallað um nauðsyn orkusparnaðar í skólaeldhúsum í landinu. Í bígerð er að byggja og koma á fót vatnsveitum sem munu færa 39 fiskiþorpum í Úganda aðgang að fersku vatni gegn einhvers konar greiðslu. Á bilinu 18-20 þúsund nemendur í grunnskólum og 50-60 þúsund Úgandabúar munu njóta góðs af afrakstrinum.

Í Afríkiríkinu Sierra Leone er einnig unnið að að þróunaraðstoð í samstarfi við UNICEF. Þróunaraðstoðin þar hefur sömu markmið og í hinum ríkjunum þar sem leitast er við að bæta aðgang að fersku vatni og aðstöðu til hreinlætis í sjávarþorpum Sierrra Leone. Samstarfið lýtur að því að byggja vatnsveitu fyrir 40 þúsund íbúa Sierra Leone ásamt tilheyrandi hreinlætisaðstöðu.

Í enn öðru Afríkuríki, Líberíu, er unnið að því að tryggja 20 þúsund íbúum aðgang að fersku neysluvatni og hreinlætisaðstöðu. Samhliða þessu eru Líberíubúar í sjávarþorpum markvisst upplýstir um mikilvægi bæði fersks neysluvatns og almenns hreinlætis

Mannúðaraðstoð er veitt af Íslands hálfu og er það einnig gert í samstarfi við UNICEF. Það er unnið bæði í hinu stríðshrjáða ríki Jemen sem er staðsett á syðsta odda Arabíuskaga og í fyrrnefndu Úganda. Í Jemen geisar borgarastyrjöld sem engan endi virðist ætla að taka. Gegn þeirri neyð er reynt af alefli að bæta aðgang að drykkjarhæfu vatni fyrir íbúa landsins.

Að sama skapi er unnið í samstarfi við UNICEF að uppbyggingu aðgangs að vatni fyrir flóttafólk frá Suður-Súdan sem koma til Úganda og gistisamfélaga þeirra. Orsökin fyrir flóttamannastraumnum í Úganda eru vopnuð átök í fyrrnefnda landinu Suður-Súdan.

Mannúðaraðstoð Íslands og UNICEF reynir að bregðast við hinum mikla vanda sem við blasir annars vegar í Úganda og hins vegar í Jemen.

Miklir þurrkar valda því að ógn stafar af alvarlegum þurrkum í Sómalíu. Ungar stúlkur við matarúthlutun í Mógadishú þar í landi.

Staðan á Íslandi 

Við Íslendingar erum lánsöm að hafa afar gott aðgengi að fersku neysluvatni. En vissulega þurfum við öll að hamla gegn vatnssóun. Draga þarf verulega úr sóun á vatni bæði á Íslandi og um allan heim. Best væri ef hægt er að hindra með öllu sóun á vatni hvar sem er á byggðu bóli.

Ísland hefur löngum talið sig geta státað af besta vatni sem völ er á hvar sem er í heimi. Íslenskur málsháttur segir að vatn sem rennur í gegnum hraun verður að fersku vatni. Í þessu spakmæli er einmitt falin ágæti íslensks neysluvatns þar sem hér er bæði vatn frá jöklum landsins og hraun.

Helstu áskoranir á Íslandi eru:

  • Hækka hlutfall skólps sem er hreinsað.
  • Ljúka innleiðingu vatnatilskipunar ESB.

Ferskt vatn, vatnsbúskapur og sjálfbær þróun

Súdönsk stúlka drekkur vatn og þvær sér um andlitið. Vatnspóstur við Omer El-Mukthar grunnskóla fyrir stúlkur.

Vatn er ekki bara nauðsynlegt fyrir heilsuna, heldur líka til að útrýma fátækt. Hið sama á við um aðgengi að vatni vegna fæðuöryggis, friðar, mannréttinda, lífrænnar heildar og menntunar. Engu að síður sjá ríki fram á auknar áskoranir vegna vatnsskorts, vatnsmengunar, niðurníðslu vatnskerfa og þeirra vatnsbirgða sem ganga þvert yfir landamæri.

Allar þjóðir heims þurfa að finna úrræði til að koma á betri vatnsbúskap í sínu heimalandi. Þannig má tryggja vatnsöflun til handa þjóðum og þegnum hvers lands fyrir sig. Úrræðin þurfa að vera bæði áhrifarík og skilvirk. Allt verður að gera í því augnamiði að tryggja enn frekari sjálfbæra þróun í anda heimsmarkmiðanna og bætt aðgengi mannkyns að neysluvatni.