4.1 Eigi síðar en árið 2030 verði tryggt að allar stúlkur og drengir ljúki góðri grunnskólamenntun á jafnréttisgrundvelli án endurgjalds til að öðlast viðeigandi og gagnlega menntun.
4.2 Eigi síðar en árið 2030 verði tryggt að allar stúlkur og drengir eigi þess kost að þroskast og dafna frá unga aldri, fá umönnun og leikskólamenntun til að búa þau undir grunnskóla.
4.3 Eigi síðar en árið 2030 verði öllum konum og körlum tryggður jafn aðgangur að góðu tækni-, starfs- og framhaldsnámi, þar á meðal á háskólastigi, á viðráðanlegu verði.
4.4 Eigi síðar en árið 2030 hafi ungmennum og fullorðnum með hagnýta kunnáttu fjölgað umtalsvert, þar á meðal á sviði tækni- og starfsmenntunar, til þess að geta gegnt viðeigandi störfum, fengið mannsæmandi vinnu og stundað frumkvöðlastarfsemi.
4.5 Eigi síðar en árið 2030 hafi kynjamismunun í menntakerfinu verið afnumin og jafn aðgangur að námi á öllum stigum tryggður og starfsþjálfun fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, þar á meðal fyrir fatlað fólk, frumbyggja og börn sem búa við erfiðar aðstæður.
4.6 Eigi síðar en árið 2030 verði tryggt að öll ungmenni og stór hluti fullorðinna, bæði karlar og konur, hafi náð tökum á lestri og skrift og öðlast talnaskilning.
4.7 Eigi síðar en árið 2030 verði tryggt að allir nemendur öðlist nauðsynlega þekkingu og færni til þess að ýta undir sjálfbæra þróun, meðal annars með menntun sem er ætlað að efla sjálfbæra þróun og sjálfbæran lífsstíl, með því að hlúa að friðsamlegri menningu, með mannréttindum, kynjajafnrétti, alheimsvitund, viðurkenndri menningarlegri fjölbreytni og framlagi menningar til sjálfbærrar þróunar.
4.A Byggð verði upp og endurbætt aðstaða til menntunar fyrir börn, óháð kyni, svo að allir geti lært í öruggu og friðsamlegu umhverfi án aðgreiningar, fatlaðir sem aðrir.
4.B Eigi síðar en árið 2020 hafi námsstyrkjum sem standa þróunarlöndum til boða verið fjölgað um heim allan, einkum í þeim löndum sem eru skemmst á veg komin, þ.e. smáeyríkjum og Afríkuríkjum, til að efla háskólamenntun í þróunarlöndum, þar á meðal starfsnám og upplýsinga- og samskiptatækni, tækninám, verkfræði og raunvísindi.
4.C Eigi síðar en árið 2030 verði framboð á menntuðum og hæfum kennurum aukið verulega, meðal annars með alþjóðlegri samvinnu um kennaramenntun í þróunarlöndum, einkum þeim sem eru skemmst á veg komin og smáeyríkjum.
Ítarefni um markmið 4


Menntun er ekki aðeins grundvallarmannréttindi heldur felast í henni réttindi sem leysa úr læðingi önnur mannréttindi. Þau eru sameiginleg gæði og einn af helstu drifkröftum framfara í öllum 17 heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.
Menntun er lykillinn að betri framtíð og er í raun grunnurinn að því að fólk fái notið samfélagslegra gæða, hvort sem þau eru efnahagsleg, félagsleg eða menningarleg. Menntun gefur einstaklingum tækifæri til að brjótast úr fátækt og til að vera virkir þátttakendur í þjóðfélaginu sem þeir tilheyra, til dæmis með þátttöku í kosningum.
Menntun er mikilvæg til að auka réttindi kvenna með því að virkja þær og efla. Menntun er einnig mikilvæg til þess að vernda börn gegn hvers konar misnotkun, til þess að virkja mannréttindi og lýðræði og menntun eykur skilning fólks á mikilvægi umhverfisverndar.
Mikilvægi menntunar er óumdeilanleg og nauðsynlegt er að tryggja aðgengi allra að góðri grunnmenntun. Það eru mannréttindi, ekki forréttindi, að njóta menntunar.
Staðan á Íslandi

Ákvæði í íslenskum lögum falla vel að heimsmarkmiðunum, svo sem um rétt allra til menntunar, gildi menntunar fyrir einstaklinga og samfélag og tengsl almennrar menntunar, lýðræðis og mannréttinda, jafnréttis, menningar og sjálfbærni. Meginmarkmið stjórnvalda er að skapa umhverfi fyrir eflingu menntunar í landinu og veita öllum viðeigandi undirbúning og tækifæri til frekara náms eða starfa og virka þátttöku í samfélaginu. Kjarni íslenskrar menntastefnu á leik- og grunnskólastigi hverfist um grunnþættina: læsi, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti, heilbrigði og velferð, sjálfbærni og sköpun.
Íslenskt samfélag stendur þó frammi fyrir ýmsum áskorunum þegar kemur að menntamálum og er mikilvægt að leggja áherslu á að skilja engan eftir.
Huga þarf sérstaklega að þörfum nemenda af erlendum uppruna og leggja áherslu á jafna stöðu og tækifæri þeirra til menntunar. Tryggja þarf stuðning á öllum skólastigum, meðal annars með aukinni áherslu á kennslu í móðurmáli og stuðla að virku tvítyngi. Jafnframt þarf að leggja áherslu á að þekking og reynsla innflytjenda sé metin.
Helstu áskoranir á Íslandi eru:
- Að efla læsi og tryggja framtíð íslenskrar tungu.
- Að fjölga kennurum.
- Að fjölga nemendum í verk- og tækninámi.
- Að vinna gegn brotthvarfi úr framhaldsskólum.
- Menntun nemenda með annað móðurmál en íslensku.
Ísland á alþjóðlegum vettvangi

Þrátt fyrir verulegar úrbætur alþjóðlega í aðgengi barna að grunnskólamenntun vantar töluvert upp á að alþjóðlegum þróunarmarkmiðum sé náð og er gæði menntunar víða ábótavant. Menntun er því lykilþáttur í þróunarsamvinnu Íslands. Áhersla er lögð á menntun barna ásamt uppbyggingu fagþekkingar innan áherslusviða Íslands, en um þessar mundir rekur Ísland meðal annars menntaverkefni í Malaví, Úganda og Palestínu.
Íslensk stjórnvöld styðja einnig við starfsemi Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi en fagfólk frá þróunarlöndum hefur þann möguleika að læra við skólana endurgjaldslaust. Skólarnir vinna að uppbyggingu fagþekkingar í þróunarlöndum í málefnum jarðhita, sjávarútvegs, landgræðslu og jafnréttis og stuðla þannig jafnframt að framgangi annarra markmiða. Ísland tekur ennfremur þátt í ýmiss konar alþjóðlegri samvinnu á sviði kennaramenntunar.
