Lög Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi
Takmark Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi er:
Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi geta verið einstaklingar, félög, fyrirtæki og stofnanir, svo sem bókasöfn og skólar. 3. grein Stjórn félagsins ákveður félagsgjöld og getur leitað eftir stuðningi aðila sem styðja vilja stefnumið félagsins. Aðalfundur Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi skal haldinn fyrir 1. maí ár hvert. Aðalfund skal boða skriflega með 14 daga fyrirvara. Rétt á fundarsetu hafa þeir meðlimir sem gerst hafa félagar eigi síðar en mánuði fyrir aðalfund. Á aðalfundi skal gefin skýrsla um starfsemi félagsins og fjárhag á liðnu starfsári. Starfsár og reikningsár félagsins er almanaksárið og skulu reikningar félagsins yfirfarnir af löggiltum endurskoðanda. Aðeins á aðalfundi má bera upp tillögur um breytingar á lögum félagsins enda hafi slíkar tillögur verið kynntar framkvæmdastjórn með viku fyrirvara. Til samþykktar þeirra þarf stuðning 2/3 - tveggja þriðju hluta - fundarmanna. Stjórn félagsins skal skipa níu menn kosnir til eins árs í senn. Formaður og varaformaður skulu kosnir sérstaklega. Að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Stjórnin skal kosin á aðalfundi og skal hittast eigi sjaldnar en fjórum sinnum á ári. Framkvæmdastjórn skulu skipa formaður, varaformaður og einn meðstjórnandi, og sinnir þeim störfum sem stjórnin felur henni og samkvæmt lögum þessum. Á aðalfundi skulu og kosnir tveir endurskoðendur til eins árs. Endurkosning manna í stjórn er heimil. Stjórnin boðar til fundar í félaginu þegar henni þurfa þykir eða þegar fimmtíu félagar hið minnsta æskja þess. Stjórninni er heimilt að ráða framkvæmdastjóra til að annast daglegan rekstur félagsins. 5. grein Lögheimili félagsins og varnarþing þess er í Reykjavík. Heimilt er að stofna einstakar deildir félagsins hvar sem er á landinu.
|







