Um félagið

Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi var stofnað 2. ágúst 1946. Saga félagsins er því orðin löng og fjölbreytileg, en skipulagðri skráningu hennar er ekki lokið.

Sama dag og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi var stofnað voru svipuð félög stofnuð í öllum aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna um heiminn og heimssamtökin World Federation of United Nations Associations (
www.wfuna.org). Síðan þá telja Félög Sameinuðu þjóðanna vel á annað hundrað, en aðildarríki Sameinuðu þjóðanna eru 193.

Við stofnun Miðstöðvar Sameinuðu þjóðanna, í mars 2004, var starfsmaður ráðinn og hafði m.a. það hlutverk í 10% stöðu fyrir Félag Sameinuðu þjóðanna að gefa út fréttabréf félagsins, uppfæra vefsetur þess, viðhalda félagatali o.s.frv. Þröstur Freyr Gylfason var ráðinn til félagsins í 20% starf í febrúar 2005 og var aukið við stöðuna árið 2006 og henni breytt í 40% hlutastarf framkvæmdastjóra. Þetta var gerbreyting frá fyrri tíð en um áratugaskeið hafði Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi verið rekið af stjórnarmönnum í sjálfboðavinnu. Guðrún Helga Jóhannsdóttir tók við stöðu framkvæmdastjóra árið 2008 og var henni kleift að auka stöðugildið í 50% til ársins 2011.

Áður en Félag Sameinuðu þjóðanna fékk aðstöðu í sameiginlegri Miðstöð SÞ á Laugavegi 42 hafði það um árabil haft starfsaðstöðu í Austurstræti. Þegar sú aðstaða var ekki lengur fyrir hendi fékk félagið í nokkur ár afnot af herbergi hjá utanríkisráðuneytinu ásamt fundaraðstöðu. Var það afar mikilvægur stuðningur utanríkisráðuneytisins við Félag Sameinuðu þjóðanna því allstórt hlutfall af fjármagni félagsins hafði um árabil farið í húsnæðisrekstur í stað verkefna.

Sú breyting, að komast í sameiginlega Miðstöð SÞ, var því mikil og opnaði fyrir nýja möguleika í starfsemi félagsins. Miðstöðin var opnuð 12. mars 2004 og var fyrst til húsa í Skaftahlíð 24. Á degi Sameinuðu þjóðanna, 24. október, árið 2005 var ný Miðstöð Sameinuðu þjóðanna formlega opnuð á Laugavegi 42, 2. hæð.

Þennan dag var 60 ára afmæli Sameinuðu þjóðanna fagnað, og af því tilefni og formlegrar opnunar nýrrar Miðstöðvar SÞ efndu Félag Sameinuðu þjóðanna í samstarfi við UNRIC (Upplýsingaskrifstofa S.Þ. fyrir V-Evrópu) til veglegs málþings um Sameinuðu þjóðirnar sextugar, undir yfirskriftinni: "Eftir leiðtogafundinn, hvað nú?".

Sameiginlega reka Miðstöð SÞ þrjú félög, þ.e. Unicef, UnWomen og Félag Sameinuðu þjóðanna.


Lög Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi:


1. gr.

Takmark Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi er:

  • Að vinna almenning í landinu til fylgis og stuðnings við samtök Sameinuðu þjóðanna.
  • Að samræma starf þeirra félagssamtaka sem leggja vilja lið sitt til þess að framkvæma hugsjónir Sameinuðu þjóðanna.
  • Að stuðla að aukinni samvinnu allra þjóða heims.
  • Að vinna að því að treysta alþjóðafrið og öryggi.
  • Að vinna að því í samvinnu við blöð, útvarp, sjónvarp og skóla að kynna Íslendingum hugsjónir og starfsemi hinna Sameinuðu þjóða.


2. gr.

Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi geta verið einstaklingar, félög, fyrirtæki og stofnanir, svo sem bókasöfn og skólar.
Heimilt er að gerast ævifélagi í félaginu.

3. gr.

Stjórn félagsins ákveður félagsgjöld og getur leitað eftir stuðningi aðila sem styðja vilja stefnumið félagsins.

4. gr.

Aðalfundur Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi skal haldinn fyrir 1. maí ár hvert. Aðalfund skal boða skriflega með 14 daga fyrirvara. Rétt á fundarsetu hafa þeir meðlimir sem gerst hafa félagar eigi síðar en mánuði fyrir aðalfund. Á aðalfundi skal gefin skýrsla um starfsemi félagsins og fjárhag á liðnu starfsári. Starfsár og reikningsár félagsins er almanaksárið og skulu reikningar félagsins yfirfarnir af löggiltum endurskoðanda. Aðeins á aðalfundi má bera upp tillögur um breytingar á lögum félagsins enda hafi slíkar tillögur verið kynntar framkvæmdastjórn með viku fyrirvara. Til samþykktar þeirra þarf stuðning 2/3 - tveggja þriðju hluta - fundarmanna. Stjórn félagsins skal skipa níu menn kosnir til eins árs í senn. Formaður og varaformaður skulu kosnir sérstaklega. Að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Stjórnin skal kosin á aðalfundi og skal hittast eigi sjaldnar en fjórum sinnum á ári. Framkvæmdastjórn skulu skipa formaður, varaformaður og einn meðstjórnandi, og sinnir þeim störfum sem stjórnin felur henni og samkvæmt lögum þessum.
Á aðalfundi skulu og kosnir tveir endurskoðendur til eins árs.
Endurkosning manna í stjórn er heimil.
Stjórnin boðar til fundar í félaginu þegar henni þurfa þykir eða þegar fimmtíu félagar hið minnsta æskja þess.
Stjórninni er heimilt að ráða framkvæmdastjóra til að annast daglegan rekstur félagsins.

5. gr.

Lögheimili félagsins og varnarþing þess er í Reykjavík. Heimilt er að stofna einstakar deildir félagsins hvar sem er á landinu.

  • Samþykkt á aðalfundi Félags Sameinuðu þjóðanna 5. mars 1976.
  • Breyting á 2. grein laganna er varðar aðild, og 4. grein laganna er varðar fjölda manna í varastjórn samþykkt á framhaldsaðalfundi 21. maí 2007.
  • Breyting á 4. grein laganna er varðar staðsetningu, dagsetningu og boðun aðalfundar, endurskoðun reikninga, fjölda manna í stjórn jafnframt því sem ákvæði um varastjórn var fellt á brott, sérkjör varaformanns einnig, kjörtímabil stjórnarmanna, framkvæmdastjórn, og framkvæmdastjóra; og 5. og 6. greinar sameinaðar undir 5. grein auk orðalagsbreytingar, samþykkt á aðalfundi 27. mars 2008. Sömuleiðis var þá ákvæði til bráðabirgða, um brottfall meðstjórnenda, frá árinu 1977 fellt á brott.