Um Global Compact Global Compact var stofnað árið 2000 og er alþjóðleg yfirlýsing sem fyrirtæki og stofnanir geta haft að leiðarljósi við innleiðingu ábyrgra starfshátta. Með þátttöku skuldbinda fyrirtæki eða stofnanir sig til þess að vinna að tíu grundvallarviðmiðum Sameinuðu þjóðanna, er varða samfélagslega ábyrgð og styðja helstu markmið Sameinuðu þjóðanna. Þátttakendur í Global Compact skila inn skýrslu árlega (Communication on Progress) og gera grein fyrir hvernig innleiðing á grundvallarviðmiðum Global Compact er háttað. Heimasíða Global Compact er: www.unglobalcompact.org
Hin tíu grundvallarviðmið Með þátttöku í Global Compact geta fyrirtæki tekið þátt í því að þróa markaðshagkerfi sem stuðlar að velferð samfélags og umhverfis með því að samtvinna hin tíu grundvallarviðmið við heildarstefnu fyrirtækisins. Grunvallarviðmiðin eru á sviði mannréttinda, vinnumarkaðsmála umhverfismála og baráttu gegn hvers kyns spillingu. MANNRÉTTINDI VINNUMARKAÐUR UMHVERFI GEGN SPILLINGU |







