Starfsnám hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi

Hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna starfa nú sjö starfsnemar sem vinna að verkefnum í kringum Þúsaldarmarkmiðin, Global Compact–samþykktir Sameinuðu þjóðanna, Globalis vefinn og almenna textavinnu á vefnum.

Ár 2011 var ár sjálfboðaliðans í Evrópu og hafa Sameinuðu þjóðirnar bætt um betur og kallað áratuginn áratug sjálfboðaliða. Sjálfboðaliðarnir okkar aðstoða félagið við að kynna almenningi fyrir hugsjónum Sameinuðu þjóðanna í hinum ýmsu formum. Tími starfsnema félagsins er okkur afar dýrmætur.

Félag Sameinuðu þjóðanna tekur ávallt á móti hæfum einstaklingum í starfsþjálfun sem og sjálfboðaliðum. Félagið býður upp á spennandi verkefni fyrir einstaklinga sem áhuga hafa á boðskap Sameinuðu þjóðanna. Vinnuframlag er sveigjanlegt og fer að mestu eftir áhuga og reynslu viðkomandi enda er starfsvið Sameinuðu þjóðanna víðfeðmt.
Áhugasamir sendi ferilskrá og kynningarbréf til framkvæmdastjóra félagsins, Berglindar Sigmarsdóttur, á netfangið: berglind@un.is.