Sjálfboðaliðastörf

UNV leitar að sérfræðingum frá ólíkum atvinnugreinum til að gerast sjálfboðaliðar innan Sameinuðu þjóðanna. Allar upplýsingar má finna á www.unv.org.

UNV hefur frá árinu 1971 ráðið yfir 30.000 sjálfboðaliða til starfa í yfir 160 löndum í heiminum. Hæfniskröfur til að gerast sjálfboðaliði fyrir S.Þ. eru eftirfarandi:

- Háskólagráða eða tæknimenntun

- Nokkra ára starfsreynsla á viðeigandi sviði

- Lágmarksaldur er 25 ár (ath. engin hámarksaldur)

- Þekkingu allavega einu þessara mála; ensku, frönsku eða spænsku

- Hollusta við lögmál og gildi sjálfboðaliðastarfa

- Geta til að vinna í fjölþjóðlegu umhverfi

- Geta til að aðlagast erfiðum aðstæðum

- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagshæfileikar

- Reynsla af sjálfboðaliðastarfi og/eða vinnu í þróunarlandi er kostur.

Sjálfboðaliðar fá ekki laun fyrir störf sín, þeir hljóta þó ýmis fríðindi, meðal annars:

- Flutningsstyrkur sem greiddur er í upphafi tímabils

- Vasapeningar sem greiddir eru mánaðarlega og ætlað er að koma til móts við mánaðarleg útgjöld

- Ferðakostnaður til og frá verkefnis í upphafi og lok tímabils er greiddur, ef staðsetning er önnur en heimaland umsækjanda

- Tryggingar og orlof

Skýrsla um framgang Þúsaldarmarkmiða Sþ 2010

Human Development Report 2009

Fréttaskeyti S.þ.
Cache Directory Unwriteable

fimmtudagur 9 september 09 2010

Könnunn

Ertu félagi í Félagi Sameinuðu þjóðanna?
  • Nei