Norrænt samstarf

Norrænt samráð um málefni Sameinuðu þjóðanna er umfangsmikið. Forsætisráðherrar og utanríkisráðherrar landanna halda reglulega fundi þar sem málefni Sameinuðu þjóðanna eru meðal annars til umræðu. Þar að auki fjalla löndin um málefni Sameinuðu þjóðanna á vettvangi Norðurlandaráðs, í beinum samskiptum milli ráðuneyta og einnig milli frjálsra félagasamtaka á Norðurlöndum. Enn fremur eru starfandi þingmannasamtök Norðurlanda þar sem málefni Sameinuðu þjóðanna eru rædd. Reglubundið norrænt samráð fer fram milli fastanefnda hjá höfuðstöðvunum í New York, skrifstofum Sameinuðu þjóðanna í Genf, Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) í París og hjá stofnunum Sameinuðu þjóðanna í Róm, þ.e. Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO), matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Alþjóðalandbúnaðarþróunarsjóðnum (IFAD). Haldnir eru reglulegir fundir þeirra embættismanna í utanríkisráðuneytum Norðurlandanna sem fara með málefni Sameinuðu þjóðanna auk þess sem þjóðréttarfræðingar utanríkisráðuneytanna fjalla m.a. um lagamál á vettvangi Sameinuðu þjóðanna á árlegum samráðsfundum sínum.
Samstarf Norðurlandanna hjá Sameinuðu þjóðunum hefur tekið nokkrum breytingum, einkanlega hvað varðar sameiginlegan málflutning sem dregist hefur saman. Ástæðan fyrir því er sú að aukin áhersla Evrópusambandsins á sameiginlega utanríkisstefnu hefur leitt til þess að ríki Evrópusambandsins, þ.á m. Danmörk, Finnland og Svíþjóð, reyna til hins ítrasta að móta sameiginlega afstöðu á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Þrátt fyrir að hinn ytri rammi norræna samstarfsins hafi tekið breytingum heldur norrænt samráð eftir sem áður áfram og hefur verið brugðist við þessum breytingum með ýmsum hætti. Norrænu utanríkisráðherrarnir samþykktu til dæmis tillögur um að viðhalda og styrkja norræna samvinnu á alþjóðavettvangi þegar aðstæður leyfðu, norrænt samráð og framlag á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, svo og að viðhalda sameiginlegum framboðum.

Samstarf Norðurlandanna við Eystrasaltsríkin

Fundir norrænu fastafulltrúanna hjá Sameinuðu þjóðunum og starfsbræðra þeirra frá Eystrasaltsríkjunum eiga sér yfirleitt stað einu sinni í mánuði og samráð fulltrúa ríkjanna átta fer vaxandi í New York. Einnig fjalla utanríkisráðherrar landanna um málefni Sameinuðu þjóðanna á svokölluðum NB8 fundum. Er það í samræmi við aukið samstarf Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna undanfarin ár, til dæmis á vettvangi Eystrasaltsráðsins, Norrænu ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs.

Skýrsla um framgang Þúsaldarmarkmiða Sþ 2010

Human Development Report 2009

Fréttaskeyti S.þ.
Cache Directory Unwriteable

fimmtudagur 9 september 09 2010

Könnunn

Ertu félagi í Félagi Sameinuðu þjóðanna?
  • Nei