Starfsmaður
Guðrún Helga Jóhannsdóttir er framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna, hún tók við því starfi af Þresti Frey Gylfasyni í júní 2008.
Við stofnun Miðstöðvar Sameinuðu þjóðanna, í mars 2004, var starfsmaður ráðinn og hafði m.a. það hlutverk í 10% stöðu fyrir Félag Sameinuðu þjóðanna að gefa út fréttabréf félagsins, uppfæra vefsetur þess, viðhalda félagatali o.s.frv.
Þröstur Freyr var ráðinn til félagsins í 20% starf í febrúar 2005, aukið var við stöðuna árið 2006 og henni breytt í 40% hlutastarf framkvæmdastjóra. Þetta er gerbreyting frá fyrri tíð; um áratugaskeið hafði Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi verið rekið af stjórnarmönnum í sjálfboðavinnu.
Um starfsmann
Guðrún Helga Jóhannsdóttir tók við stöðu framkvæmdastjóra Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi í júní 2008. Hún leggur nú stund á meistaranám í þróunarfræðum við Háskóla Íslands. Áður hefur hún lokið meistaragráðu í Afríkufræðum frá Kaupmannahafnarháskóla og BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.
Guðrún Helga sat áður í framkvæmdastjórn félagsins. Hún var starfsnemi hjá Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) í Kaupmannahöfn 2005-2006, sat í verkefnastjórn fyrsta IceMUN þingsins sem haldið hefur verið á Íslandi 2002-2003 og var alþjóðafulltrúi Stúdentaráðs Háskóla Íslands 2002-2003.