Stutt frásögn

Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi var stofnað 2. ágúst 1946. Saga félagsins er því orðin löng og fjölbreytileg, en skipulagðri skráningu hennar er ekki lokið.

Sama dag og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi var stofnað voru svipuð félög stofnuð í öllum aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna um heiminn og heimssamtökin World Federation of United Nations Associations. Síðan þá telja Félög Sameinuðu þjóðanna vel á annað hundrað, en aðildarríki S.Þ. eru 192.

Systursamtökin á Norðurlöndunum eru mjög öflug og Félag Sameinuðu þjóðanna hefur gott samstarf við þau. Samráðsfundir eru haldnir meðal félaganna árlega þar sem skipst er á hugmyndum, enda fer mikið starf fram hjá félögunum sem hafa samtals um sextíu starfsmenn í fullu starfi. Hafa systurfélögin boðið Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi endurgjaldslaust allt það kynningar- og upplýsingaefni sem þau hafa hannað og framleitt. Í samræmi við almenn markmið félagsins, er verkefnið því að velja úr öllu því góða efni sem til er á Norðurlöndum, þýða það og staðfæra.

Evrópusamstarfið er einnig gott, en á þeim vettvangi höfðu félög Sameinuðu þjóðanna í Evrópu lengi starfað undir merkjum UNA-EU Liaison Group. Í ársbyrjun 2007 var svo samþykkt að efla og skýra formið á samstarfinu frekar og var þá tekið upp nýtt nafn á samstarfshópnum: UNA Europe Network

Skýrsla um framgang Þúsaldarmarkmiða Sþ 2010

Human Development Report 2009

Fréttaskeyti S.þ.
Cache Directory Unwriteable

fimmtudagur 9 september 09 2010

Könnunn

Ertu félagi í Félagi Sameinuðu þjóðanna?
  • Nei