Stuðningur og samstarf við stofnanir Sameinuðu þjóðanna Stuðningur og samstarf við stofnanir Sameinuðu þjóðanna er veigamesti þáttur fjölþjóðlegrar þróunarsamvinnu á vegum íslenskra stjórnvalda, en 65% framlaga til alþjóðastofnana rennur til starfsemi SÞ. Íslensk stjórnvöld leggja áherslu á samstarf við stofnanir sem endurspegla markmið Íslands og eru þrjár þeirra lykilstofnanir í þróunarstarfi Íslands: Barnahjálp Sameinuðu Þjóðanna, UNICEF, Stofnun SÞ um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna, UN Women (áður UNIFEM) og Háskóli Sameinuðu þjóðanna, UNU. UNICEF Hlutverk UNICEF er að bæta hag barna, ungs fólks og kvenna í þróunarlöndum á grundvelli Barnasáttmála SÞ. Stofnunin sinnir einnig mikilvægu starfi við neyðar og mannúðaraðstoð. Stuðningur við UNICEF felst í almennum og eyrnamerktum framlögum. Sem liður í áherslu stjórnvalda á Miðausturlönd hefur starfsemi UNICEF í Palestínu verið styrkt. Íslenskir sérfræðingar hafa einnig starfað við skemmri verkefni á vegum Íslensku friðargæslunnar hjá UNICEF á svæðinu. Stjórnvöld hafa í samstarfi við Landsnefnd UNICEF á Íslandi stutt við UN Women Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna ákvað í júlí 2010 að koma á fót nýrri stofnun um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna, UN Women. Voru þá fjórar stofnanir sem störfuðu að jafnréttismálum innan SÞ sameinaðar í eina. UN Women tók til starfa 1. janúar 2011. Tilgangurinn með sameiningunni er að efla og styrkja jafnréttismál innan SÞ, aðstoða aðildarríkin Markviss barátta fyrir jafnrétti kynjanna er meginmarkmið stofnunarinnar. Hún er háð með því að efla efnahagsleg réttindi og öryggi kvenna, draga úr ofbeldi gegn konum, hefta útbreiðslu HIV/alnæmis og huga að kynjajafnrétti í lýðræðisþróun. Framlag Íslendinga er bæði almennt og eyrnamerkt styrktarsjóð sem berst gegn kynbundnu ofbeldi. Auk þess hafa framlög runnið til verkefna í Afganistan, Palestínu og á Balkanskaga. Íslenskir sérfræðingar hafa verið kostaðir til starfa hjá UNIFEM undanfarin ár á Balkanskaga, í Líberíu, á Barbados og í höfuðstöðvum sjóðsins. Einnig er gott samstarf milli utanríkisráðuneytisins og Landsnefndar UN Women á Íslandi og var formlegur samstarfssamningur við Landsnefndina framlengdur til þriggja ára á árinu 2010. Aðrar stofnanir Sameinuðu þjóðanna Íslendingar styðja að auki starfsemi annarra stofnana Sameinuðu þjóðanna sem allar eiga það sameiginlegt að gegna lykilhlutverki í alþjóðlegri þróunarsamvinnu og neyðar- og mannúðaraðstoð. UNFPA - Mannfjöldasjóður SÞ UNFPA starfar á sviði mannfjöldaþróunar og kyn- og frjósemisheilbrigðis og –réttinda. Hluti íslenskra framlaga hefur runnið í sérstakan sjóð á vegum stofnunarinnar sem aðstoðar konur sem þjást af fistli til að ná heilsu með einfaldri skurðaðgerð (sjá umfjöllun á bls 9). Sjóðurinn hefur líka beitt sér í málefnum kvenna í Afganistan og hefur sú starfsemi hlotið stuðning íslenskra stjórnvalda. Flóttamannaaðstoð SÞ, UNHCR vinnur að málefnum flóttamanna um allan heim. Stofnunin sinnir yfir 10 milljónum flóttamanna og er fjármögnuð með frjálsum framlögum aðildarríkja SÞ. Framlagi íslenskra stjórnvalda hefur verið varið til almennra verkefna og til stuðnings við flóttamenn í Jórdaníu og Afganistan. Matvælaaðstoð SÞ, WFP er öflugasta stofnun SÞ á sviði mannúðaraðstoðar og á árinu 2011 er talið að um 90 milljónir nauðstaddra á hamfarasvæðum í 70 löndum njóti aðstoðar hennar. Þegar neyðarástand skapast kallar stofnunin eftir framlögum sem stjórnvöld bregðast við. Framlög íslenskra stjórnvalda á ári hverju ráðast af slíkum beiðnum, en á árinu 2010 var framlögum beint til Pakistan og Fílabeinsstrandarinnar. Matvæla- og landbúnaðarstofnun SÞ, FAO er helsta stofnun SÞ á sviði landbúnaðar, fiskimála og skógræktar. Verkefni hennar á sviði þróunarsamvinnu miða að því að auka fæðuöryggi, en íslensk stjórnvöld hafa stutt við verkefni á sviði fiskimála. Alþjóðabankinn Jafnréttismál innan Alþjóðabankans ESMAP Við ESMAP starfar íslenskur jarðhitasérfræðingur, kostaður af Íslandi, að greiningu og undirbúningi verkefna í þróunarríkjum sem Alþjóðabankinn getur stutt. Það styrkir undirbúning þessara verkefna að víða, þar sem jarðhita er að finna, eru starfandi sérfræðingar sem hafa hlotið menntun við Jarðhitaskóla HSÞ á Íslandi. PROFISH |







