Stjórn Félags SÞ Stjórn Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, starfsárin 2013 - 2015, skipa eftirtaldir:
Aðalfundur Félags Sameinuðu þjóðanna er iðulega haldinn fyrir 1.maí ár hvert þar sem farið er yfir rekstrarreikninga félagsins og starfsemi félagsins. Stjórn félagsins er kosin úr hinum ýmsu áttum samfélagsins. Starfsnemar Starfsnemar Félags Sameinuðu þjóðanna eru eftirtaldir:
Starfsmaður Berglind Sigmarsdóttir er framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna, hún tók við því starfi af Guðrúnu Helgu Jóhannsdóttur í ágúst 2011. Berglind hefur yfir tíu ára starfsreynslu af viðskiptum og alþjóðasamskiptum. Hún starfaði í fjögur ár hjá Dresdner Bank í Þýskalandi við alþjóðlegar fjármagnanir. Þá vann hún sem deildarstjóri fjármála- og áhættustýringar hjá Olíufélaginu ehf. Í New York vann hún fyrir viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins og kynntist þar starfsemi fastanefndar Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum. Í kjölfarið vann hún fyrir Útflutningsráð og viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins til nokkurra ára, m.a. að málefnum Alþjóðabankans, þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna og annarra alþjóðastofnana. Fyrir hrun vann hún sem sérfræðingur á alþjóðasviði Glitnis í orkuteymi bankans. Þar kom hún m.a. að stefnumótun í samfélagslegri ábyrgð bankans tengdri Global Compact samþykktum Sameinuðu þjóðanna. Eftir hrun tók hún svo við ýmsum verkefnum á fyrirtækjasviði Íslandsbanka. Berglind lauk BSc prófi í alþjóðlegum viðskiptum (International Business Administration) frá London og Þýskalandi árið 1998 og svo meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu (MPA) frá Háskóla Íslands árið 2006. Berglind hefur í gegnum árin unnið sem sjálfboðaliði með skiptinemasamtökum AFS og sat í stjórn Félags Sameinuðu þjóðanna frá 2007-2011. Netfang: berglind@un.is Sími: +354 - 897.4453 |







