Fréttir
Börn notuð í hernaði í Sýrlandi
12 June, 2012

Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur kynnt Öryggisráðinu árlega skýrslu um börn og hernaðarátök. Þar er greint frá högum drengja og stúlkna á átakasvæðum og aðgerðir til að vernda börn. Í skýrslunni er að finna nöfn þeirra aðila sem nota börn í hernaði, drepa eða særa, fremja kynferðislegt obeldi, ráðast á skóla og sjúkrahús. Radhika Coomaraswamy, fulltrúi framkvæmdastjóra SÞ í málefnum barna og hernaðarátaka. SÞ-mynd/Devra Berkowitz

Börn hafa þjáðst í nýjum átökum árið 2012. Sýrlenski stjórnarherinn, leyniþjónusta landsins og Shabbiha vígasveitir hafa myrt og slasað börn, handtekið af handahófi, fangelsað, pyntað, beitt þau harðræði og kynferðislegu ofbeldi.   
 
Börn á aldrinum átta til þrettán ára hafa verið tekin með valdi af heimilum sínum og notuð sem mannlegir skildir af hermönnum. Þau hafa verið látin sitja við glugga á herflutningabílum sem hafa flutt hermenn til árása á þorp. Ráðist hefur verið með reglubundnum hætti á skóla og þeir notaðir sem herstöðvar og fangelsi. Stúlkur og drengir hafa verið lamin í haldi, bundið fyrir augu þeirra og þau látin standa svo tímun skiptir. Þau hafa matt þola raflost og verið hýdd með þungum rafmagnsköplum.

“Heimurinn fylgist með og skráir ofbeldisverk gegn óbreyttum borgurum í Sýrlandi og ég er sannfærð um að refsað verður fyrir þessa glæpi,” segir Radhika Coomaraswamy, fulltrúi framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna í málefnum barna og hernaðarátaka.
 
Framkvæmdastjórinn hefur í fyrsta skipti birt lista yfir aðila sem ábyrgð bera á árásir á skóla og sjúkrahús auk þeirra sem neyða börn til að taka þátt í hernaðarátökum, drepa, særa eða beita þau kynferðislegu ofbeldi. Birting þessa lista er í samræmi við ályktun Öryggisráðsins númer 2998 frá því á síðasta ári.

Sjá skýrsluna í heild.

SÞ-mynd/Devra Berkowitz